Ísabella að gera það gott ytra

Ísabella Guðmundsdóttir, leikmaður Tindastóls í körfuknattleik, stundar nú nám og körfuknattleik í Riverview High School í Pennsylvaniu. Núna í vikunni birtist viðtal við Ísabellu sem gaman er að lesa.

Viðtalið og frásögnin birtist í The Tribune Review, staðarblaðinu og þar er farið yfir veru Ísabellu úti og hvernig það kom til. Hún er að vísu sögð frá Reykjavík, en við kippum okkur ekkert upp við það neitt.

Viðtalið má sjá HÉR.

Svo er bara að vona að Ísabella snúi á heimaslóðir fyrir næsta tímabil og taki þátt í uppbyggingu meistaraflokksliðs kvenna sem áformað er að setja á laggirnar.