10. flokkur stúlna var síðastur yngri flokka Tindastóls til að ljúka Íslandsmótinu þetta árið. Stelpurnar duttu úr leik í undanúrslitum fyrir sterku liði Keflavíkur 46-21.
Varnarleikur stúlknanna var ágætur oft á tíðum en sóknarleikurinn erfiður gegn sterkum andstæðingum.
Keflavík leiddi 7-9 eftir fyrsta leikhlutann en í hálfleik jókst munurinn í 22-11. Þriðji leikhlutinn gerði síðan endanlega út um leikinn, en Keflavík vann þann leikhluta 16-4. Lokatölur eins og áður segir 46-21.
Bríet Lilja skoraði 10 stig auk þess að taka 7 fráköst, Guðlaug Rún setti 9 og Árdís Eva 2 og tók 8 fráköst.
Tölfræði leiksins.