28.11.2013
Stelpurnar hefja leikinn á sunnudag kl 14:00 við Snæfell. Má nú búast við því svona fyrirfram að stelpurnar úr hólminum ætli ekki að láta okkar unga lið stríða sér. Mikill stígandi hefur verið hjá Tindastólsstúlkum í síðustu leikjum og er það klárt mál að þær mæta með bros á vör og verða tilbúnar í slaginn. Klukkan 16:15 Mæta svo strákarnir liði Reyni frá Sandgerði. Reynir spilar í annari deild og svo þetta er svona svipað og í fyrri leiknum að þeir eiga að vera sýnd veiði en ekki gefin. Vonandi sjá sér flestir fært að gera sér glaðan dag og mæta í húsið og styðja við bakið á okkar körfuboltafólki. miðaverð er 1000kr á Tindastól-Snæfell og 1500kr á Tindastól-Reyni Sandgerði. Koma svo allir sem einn Áfram Tindastóll.