Bríet Lilja kölluð í U-15 ára landsliðið

Finnur Jónsson, landsliðsþjálfari U-15 stúlkna, hefur kallað Bríeti Lilju Sigurðardóttur inn í landsliðið, sem tekur þátt í Copenhagen Invitational mótinu í sumar.

Bríet Lilja er kölluð inn vegna meiðsla í 12 manna hópnum en fyrir í honum er Linda Þórdís Róbertsdóttir.

Tindastóll á því tvo leikmenn í U-15 ára landsliði stúlkna sem er sannarlega gleðilegt. Landsliðsstúlkurnar eru því þrjár í heildina í yngri landsliðunum, en Guðlaug Rún Sigurjónsdóttir var valin í U-16 ára liðið.