Stúlkan sem lést í umferðarslysinu á Vesturlandsvegi við Fornahvamm í Norðurárdal síðastliðinn sunnudag hét Anna Jóna Sigurbjörnsdóttir, búsett á Sauðárkróki.
Foreldran Önnu Jónu eru Sigurbjörn Björnsson og Bára Jónsdóttir. Í morgun var falleg minningarathöfn við Fjölbrautarskólann þar sem samnemendur og kennarar og íbúar minntust Önnu Jónu, virkilega fallegt af öllum sem að þessu stóðu. Stjórn Körfuknattleiksdeildar vottar Sigurbirni, Báru og Helgu systur hennar, ættingjum og vinum sýna dýpstu samúð á þessum erfiða tíma. Þeir fara fyrstir sem guðirnir elska mest.
F/H kkd Stefán B Jónsson Formaður.