21.10.2013
Stelpurnar gerðu sér lítið fyrir og unnu báða leiki helgarinnar. Sá fyrri var á móti FSU. Var leikurinn nokkuð jafn en Tindastólsstúlkur voru þó alltaf með yfirhöndina og endaði leikurinn 59-54 fyrir stelpunum.
Seinni leikurinn var á móti Laugdælum en sá leikur var aldrei spennandi. Stelpurnar okkar tóku forystuna strax og var staðan að loknum fyrsta leikhluta 29-9. Laugdælir náðu sér aldrei á strik á móti sprækum heimastelpum og voru lokatölur 91-26, Tindastól í vil.
Stelpurnar spiluðu báða leikina mjög vel, bæði í vörn og sókn. Tashawna var atkvæðamest í báðum leikjum og var grimm í fráköstunum en samt sem áður dæmast báðir sigrarnir á liðið í heild sinni.
Leikirnir voru báðir sýndir á TindastóllTV og þökkum við þeim sem að því komu kærlega fyrir sem og dómurum leikjanna en þess má geta að allt er þetta unnið í sjálfboðastarfi fyrir félagið.
Næsti heimaleikur stúlknanna er 8.desember en þær eiga þrjá útileiki fram að þeim tíma. Við hvetjum að sjálfsögðu stuðningsmenn liðsins að mæta á leikina, jafnt heima sem og að heiman.
Áfram Tindastóll!