Frestaður Skallagrímsleikur 10. janúar

Búið er að setja frestaðan Skallagrímsleik á dagskrá fimmtudaginn 10. janúar í Síkinu. Leiknum var frestað í nóvember vegna veðurs.

Tindastólsliðið hefur nýtt ár á útileik við Grindvíkinga fimmtudaginn 4. janúar. Skallagrímsleikurinn verður viku síðar og lýkur Tindastóll þá fyrri umferð Íslandsmótsins.