Heimasíðað óskar eftir penna

Körfuknattleiksdeildin óskar eftir áhugasamri manneskju til að fjalla um málefni meistaraflokksins, skrifa um leiki og flytja fréttir af liðinu og starfsemi þess á heimasvæði körfuknattleiksdeildarinnar á tindastoll.is.

Þetta er tilvalið fyrir körfuboltaáhugafólk sem hefur gaman af því að skrifa fréttir og taka viðtöl. Starfið verður unnið í samráði við ritstjóra heimasíðunnar, Karl Jónsson, sem gefur allar nánari upplýsingar. Helstu verkefni;

  • Umfjallanir um leiki meistaraflokksins
  • Viðtöl við leikmenn og þjálfara
  • Vinnsla á efni fyrir heimasíðuna eins og leikmannakynningar og slíkt.

Nánari upplýsingar gefur Kalli í síma 8442461 og á netfanginu coachkarl@internet.is.