Leikir helgarinnar

Drengjaflokkur leikur við Hauka syðra og 7. flokkur drengja spila í fjölliðamóti um helgina í Þorlákshöfn. 

Leikur drengjaflokks við Hauka fer fram í íþróttahúsinu við Strandgötu í Hafnarfirði í dag og hefst leikurinn kl.15:20.

7.flokkur drengja leikur í fjölliðamóti í Þorlákshöfn um helgina. Fyrsti leikur er kl.14 í dag við Val og  kl.16 við Ármann. Á morgun kl.11 spila strákarnir við heimamenn í Þór og loks við Snæfell kl.13. 

Á vef KKÍ er gert ráð fyrir leik 11.flokks karla við Stjörnuna í Ásgarði í dag en samkvæmt heimildum hefur honum verið frestað.

Þá leikur meistaraflokkur kvenna í dag við Stjörnuna í Ásgarði í Garðabæ kl.15:45.