Leiknum í kvöld frestað vegna veðurs

Búið er að fresta leik Tindastóls og Skallagríms sem vera átti í kvöld vegna veðurs. Ekki hefur verið fundinn nýr leiktími, en líklega ekki hægt að spila leikinn fyrr en 22. nóvember í fyrsta lagi.

Mikið af leikjum er framundan bæði í Íslandsmóti og Lengjubikar og þannig eru allir sunnudagar og fimmtudagar uppteknir leikdagar hjá liðinum, þangað til fimmtudaginn 22. nóvember.

Næsti leikur strákanna verður því úti á sunnudaginn gegn Fjölni í Lengjubikarnum.