Lokahóf meistaraflokks á laugardaginn

Lokahóf meistaraflokks Tindastóls í körfuknattleik verður haldið á Mælifelli á laugardaginn kemur. Skráning á hófið er hjá Óla Birni í síma 825 4628.

Húsið opnar kl. 19.30 og miðaverð er kr. 2800.

Stefán Jónsson verður veislustjóri þannig að það má búast við beittum bröndurum og sögum yfir matnum. Leikmenn verða með skemmtiatriði og viðurkenningar veittar að venju.

Eftir hófið verður síðan dansað fram á rauða nótt.

Athygli er vakin á því að nauðsynlegt er að skrá þátttöku á hófið og er það gert hjá Óla Birni í síma 825-4628.