Meistaraflokkur kvenna að hefja æfingar.
Nú hefur meistaraflokkur kvenna hafið æfingar fyrir komandi tímabil. Þær ætla að æfa nokkrum sinnum áður en þjálfari þeirra og leikmaður Tashawna Higgins mætir á svæðið en hún er væntanleg um mánaðamótin, verði allir pappírar klárir. Erna ætlar að sjá um skipulag æfinganna þangað til. Það er spennandi vetur framundan og verður skemmtilegt að fylgjast með gangi mála hjá stelpunum.
Áfram Tindastóll!