Morgunmatinn í rúmið á sunnudaginn?

Meistaraflokkur og unglingaráð ætla í sameiningu að efna til fjáröflunar í samvinnu við Sauðárkróksbakarí, með því að bjóða fólki upp á að fá morgunverð sendan heim á sunnudaginn.

Í boði eru þrennskonar pakkar; Bakkarinn, Framherjinn og Centerinn.

Verð:
Bakkarinn: 2500,- kr.
Framherjinn: 4000,- kr.
Centerinn: 5500,- kr.

Tekið er á móti pöntunum í síma 455-5000 í Sauðárkróksbakaríi
fyrir kl. 14:00 á laugardag, greiðist með kreditkorti við pöntun og
við mætum með morgunmatinn til þín milli 9 og 11 (þú velur tímann).

Sjá nánar með því að smella á myndina með fréttinni!

Verði ykkur að góðu kæru bæjarbúar og takk fyrir stuðninginn við körfuknattleiksdeildina.