Mótinu aflýst um helgina

Fyrirhuguðu æfingamóti sem vera átti um helgina hefur verið aflýst, þar sem KR-ingar afboðuðu sig á síðustu stundu. Hattarmenn eru hins vegar á leiðinni og verða spilaðir leikir í kvöld og á morgun.

Aðallið Tindastóls og Hattar munu spila í kvöld kl. 19.15 og fyrirhugað er að spila annan leik á morgun, en það kemur nánar í ljós þegar liðsmenn Hattar mæta á svæðið. Stuðningsmenn eru hvattir til að fylgjast með hér á heimasíðunni, auk þess sem fréttir ættu að vera af framhaldinu á leiknum í kvöld.