- Félagið
- Fótbolti
- Körfubolti
- Sund
- Frjálsar
- Skíði
- Júdó
- Bogfimi
- Badminton
Tindastólsmenn féllu úr leik í Poweradebikarnum í gærkvöldi þegar
strákarnir sóttu Njarðvíkinga heim í Ljónagryfjuna. Leikurinn var æsispennandi
en slakur lokakafli Stólanna reyndist dýrkeyptur. Haukur Helgi Pálsson setti
niður þrist þegar tvær sekúndur voru eftir og þrátt fyrir ágæta tilraun tókst
Stólunum ekki að jafna. Lokatölur 66-63.
Stólarnir fóru vel af stað, komust í 8-17 en Njarðvíkingar náðu að jafna
fyrir lok fyrsta leikhluta, 19-19. Annar leikhluti var hnífjafn og í hálfleik
var staðan 35-34 fyrir Njarðvík. Ingvi Rafn kom sterkur inn í síðari hálfleik
og Stólarnir náðu forystu um hann miðjan sem þeir héldu út leikhlutann. Staðan
47-53 þegar lokakaflinn hófst og Ingvi byrjaði á að negla niður þristi. Þá kom
slæmur kafli og Njarðvíkingar jöfnuðu 56-56. Flake setti niður þrist en varnir
liðanna voru sterkar og lítið gekk að skora. Á endanum gerðu Stólarnir aðeins
fjórar körfur í leikhlutanum og það var hreinlega of lítið.
Leikurinn var engu að síður jafn og tvísýnn og baráttan í öndvegi.
Njarðvíkingar voru heldur sterkari í fráköstunum en 3ja stiga nýting Stólanna
var slök, 6/33 (18%), og helstu 3ja stiga skyttur liðsins fleyttu kerlingar
allan leikinn, það var aðeins Flake sem nýtti þau skot vel. Jerome Hill hefur
litlu skilað í fyrstu leikjum sínum með Stólunum sem allir hafa tapast. Í gær
var hann með átta fráköst og fimm stig.
Í viðtali við Vísir.is sagðist Kári Marísson nýskipaður þjálfari Tindastóls
skiljanlega vera svekktur.
„Já ég er frekar svekktur með að tapa þessum leik.
Þetta var bikarleikur og við viljum alltaf vinna stóru leikina. En þetta var
hörku skemmtilegur leikur og góðar varnir hjá báðum liðum. Það er greinilegt að
bæði lið eru á svipuðum stað, þetta var svolítið stirt hjá báðum liðum,"
sagði Kári.
Það hefur varla farið framhjá nokkrum manni að Pieti Poikola, sem ráðinn
var þjálfari Tindastóls í sumar, var sagt upp á dögunum en leikskipulag hans
hefur mikið verið rætt. Tindastóll hefur gjörbreytt öllu eftir brotthvarf
hans.
„Við breyttum bara öllu, frá A til Ö. Leikskipulagið, leikstílinn og
kerfin. Við fórum bara í sama pakka og í fyrra og rúlluðum yfir það seinustu
tvo daga og reyndum að fá það sem við gátum út úr því," sagði Kári sem
hefur tekið við liðinu tímabundið en ekki hefur verið rætt hversu lengi hann
verður við stjórn. „Það er algjörlega óvíst og ég pæli ekkert í því. Það
bara kemur það sem kemur og við mætum bara aftur frískír hingað á fimmtudaginn
og reynum að gera betur," sagði Kári að lokum en liðin mætast í
Dominos-deildinni á fimmtudag.
Stig Tindastóls: Lewis 14, Flake 13, Ingvi 10, Pétur 6, Helgi
Viggós 6, Hill 5, Hannes 4, Helgi Margeirs 3 og Arnþór 3.