Síðasta búningapöntunin framundan

Síðasta búningapöntun keppnistímabilsins er framundan og þurfa allir sem ætla að panta sér búning að þessu sinni, að gera það eigi síðar en 5. mars.

Anna Steinunn Friðriksdóttir tekur á móti pöntunum og veitir allar upplýsingar. Hér fyrir neðan má síðan finna slóð á pöntunarblað sem hægt er að prenta út og koma til hennar eða senda í tölvupósti. Allar upplýsingar um kostnað og annað er að finna á eyðublaðinu.

Slóð á pöntunarblað.