01.12.2013
Tindastóll mætti liði Snæfells í Powerade bikarnum í dag og var þar um fínustu skemmtun að ræða. Sást það strax í upphafi leiks að Hólmarar voru ekki komnir norður í land til að slaka eitthvað á enda lið Snæfells ógnarsterkt. Gaman var að sjá ungt lið Tindastóls eiga við stelpurnar úr Hólminum og geta þær borið höfuðið hátt eftir að berjast hetjulega allan leikinn og fengið dýrmæta reynslu að spila við eitt af bestu liðum landsins. Lokatölur Tindastóll 46-94 Snæfell. Þrátt fyrir yfirburði Snæfells héldu stelpurnar ótrauðar áfram og börðust allt til enda og eiga þær hrós skilið fyrir það, allar stúlkurnar komu við sögu í leiknum og er það bara flott fyrir þær að fá svona stóran leik í reynslubankann. Næsti leikur hjá stelpunum er við topplið Breiðabliks 8. des í Síkinu og má búast við hörkuleik þar. Áfram Tindastóll.