Unglingaflokkur karla með heimaleik í 8-liða úrslitum Í KVÖLD!!

Strákarnir í unglingaflokki taka á móti Fjölni í 8-liða úrslitum Íslandsmótsins í Síkinu Í KVÖLD og hefst leikurinn kl. 19.15.

Tindastóll lenti í 2. sæti A-riðils og mæta Fjölni, sem endaði í 3. sæti B-riðils. Í húfi er þátttökuréttur í undanúrslitunum sem fram fara í DHL-höllinni um næstu helgi.

Það er full ástæða til að hvetja fólk til að mæta á leikinn og styðja strákana til sigurs.