Unglingaflokkur Tindastóls vann góðan sigur á KR í dag, 95-72. KR-ingar byrjuðu leikinn betur en strákarnir komu til baka og leiddu eftir fyrsta leikhluta 27-19. Jafnræði var með liðunum í öðrum leikhluta og staðan í hálfleik 48-40 Tindastól í vil.
Áfram var jafnræði með liðunum í þriðja leikhluta, 67-62. Í fjórða leikhluta fór að bera á þreytu í liði KR-inga, sem aðeins mættu norður með sjö leikmenn, á meðan Kári Mar virtist geta skipt inn á í lið Tindastóls að vild. Lokatölur 95-72.
Á síðustu sekúndunum voru skemmtileg tilþrif þegar að Viðar Ágústsson stal boltanum, óð með hann upp völlinn og tróð með tilþrifum áhorfendum til mikillar skemmtunar.
Stigahæstir í liði Tindastóls voru Ingvi með 32 stig, Pétur með 18 og Friðrik Stefáns 18.
Lið Tindastóls: Ingvi, Agnar, Þröstur, Pétur, Árni, Friðrik Stefáns, Finnbogi, Friðrik Hrafn, Páll, Viðar, Hannes og Sigurður Páll.