Unglingalandsmót 2013 karfa

Hópur krakka frá Tindastól kepptu i körfubolta á Unglingalandsmótinu sem haldið var á Höfn í Hornafirði.
Krakkarnir náðu góðum árangri eins og sjá má hér.
Hjá stelpum 15-16 ára kepptu þær Guðlaug Rún Sigurjónsdóttir, Árdís Eva Skaftadóttir, Valdís Ósk Óladóttir, Jóna María Eiríksdóttir, Margrét Helga Sigurbjargardóttir og lentu í 4 sæti.
Hjá strákum 13-14 ára kepptu Halldór Broddi Þorsteinsson, Guðni Bjarni Kristjánsson, Haukur Sindri Karlsson, Rúnar Ingi Stefánsson og fengu til liðs við sig þá Þorgeir frá Borgarnesi og Almar frá Hvammstanga  og enduðu í 3. sæti
Þeir Ragnar Ágústson og Skírnir Már Skaftason kepptu í flokki 11-12 ára með Þór frá Akureyri og gerðu sér lítið fyrir og unnu gullið.
Svo keppti Pálmi Þórsson með  HSH (Snæfelli) í 15-16 ára og þeir lentu i 3. sæti og einnig keppti sama lið í 17-18 ára og enduðu þar i 2. sæti
Helga Þórsdóttir, Árdís Eva Skaptadóttir og Guðlaug Rún Sigurjónsdóttir kepptu með  HSH í 17-18 ára og lentu í  2. sæti