Æfingar yngri flokkanna í jólafríinu

Nú þegar jólafríið nálgast er rétt að koma á framfæri vinnureglum unglingaráðs varðandi æfingar yngri flokkanna í jólafríinu.

Jólafrí þeirra yngri flokka sem ekki taka þátt í Íslandsmótinu fylgir nánast jólafríi Árskóla. Þeir fara í frí frá og með föstudeginum 21. desember og hefja aftur æfingar föstudaginn 4. janúar. Þetta eru Minni- og míkróboltaflokkar drengja og stúlkna.

Síðasta morgunæfingin fyrir jólafrí er á þriðjudag. Körfuboltaskólinn er kominn í jólafrí og verður ekki opnaður aftur fyrr en sunnudaginn 6. janúar.

Æfingar í jólafríi þeirra flokka sem taka þátt í Íslandsmótinu verða svona;

23.- 26. desember frí.

27. des. Æfingar skv. æfingatöflu.

28. des. Engar æfingar vegna jólaballs Lions.

29. des. Æfingar skv. æfingatöflu.

30. des. - 2. jan. frí.

Æfingar hefjast svo aftur eftir frí miðvikudaginn 2. janúar 2013.