- Félagið
- Fótbolti
- Körfubolti
- Sund
- Frjálsar
- Skíði
- Júdó
- Bogfimi
- Badminton
Stjórn Körfuknattleiksdeildar Tindastóls lýsir yfir mikilli ánægju með að hafa náð að semja við Sigtrygg Arnar Björnsson um að leika með liðinu næsta tímabil 2021-2022 en skrifað var undir samning við Sigtrygg Arnar nú fyrr í kvöld . Við getum sagt að Sigtryggur Arnar sé komin aftur heim en hann á ættir sínar að rekja í Skagafjörðinn en hann lék með liðinu 2017-2018 þegar Tindastóll varð bikarmeistari og átti stórann þátt í velgengni liðsins þá . Sigtryggur Arnar verður mikill styrkur fyrir félagið og sérstaklega fyrir íslenskan kjarna liðsins.
Við bjóðum Sigtrygg Arnar velkominn í Skagafjörðinn.