Önnur umferð fjölliðamótanna að hefjast

Nú er önnur umferð fjölliðamótanna að hefjast um næstu helgi og eru það fjórir flokkar sem hefja umferðina. 8. flokkur stúlkna keppir hér heima, stúlknaflokkur í Grafarvogi, 8. flokkur drengja á Akureyri og 11. flokkur drengja í Kópavogi. Þá spilar unglingaflokkur karla við Breiðablik á laugardaginn.

Stelpurnar í 8. flokki spila í B-riðli hér heima gegn Kormáki, Snæfelli, Hamar/Þór Þorlákshöfn og Njarðvík. Leikjaprógrammið þeirra er svona:

10-11-2012 11:00 gegn Kormákur 8. fl. st. - Sauðárkrókur
10-11-2012 14:00 gegn Snæfell 8. fl. st. - Sauðárkrókur
11-11-2012 10:00 gegn Hamar/Þór Þ. 8. fl. st. - Sauðárkrókur
11-11-2012 13:00 @ Njarðvík 8. fl. st. - Sauðárkrókur

Stúlknaflokkur er í sameiginlegu liði með KFÍ og núna bætast tvær stúlkur frá Patreksfirði við hópinn og úr er orðið fjölþjóðalið ef svo má segja. Þær spíla í B-riðli í Rimaskóla í Grafarvogi:

10-11-2012 13:45 @ KR/Snæfell st. fl. - Rimaskóli
10-11-2012 16:15 @ Breiðablik st. fl. - Rimaskóli
11-11-2012 09:00 gegn Fjölnir st. fl. - Rimaskóli

8. flokkur drengja keppir í Glerárskóla á Akureyri í C-riðli en strákarnir rúlluðu D-riðlinum upp síðast:

10-11-2012 12:30 @ Þór Ak. 8. fl. dr. - Glerárskóli
10-11-2012 14:30 @ Fjölnir b 8. fl. dr. - Glerárskóli
10-11-2012 16:30 @ Ármann 8. fl. dr. - Glerárskóli

11. flokkur drengja keppir svo í Smáranum í Kópavogi í B-riðli:

10-11-2012 13:45 gegn Fjölnir 11. fl. dr. - Smárinn
10-11-2012 17:30 gegn Þór Ak. 11. fl. dr. - Smárinn
11-11-2012 11:30 gegn Breiðablik 11. fl. dr. - Smárinn
11-11-2012 14:00 gegn Hamar/Þór Þ. 11. fl. dr. - Smárinn

Unglingaflokkur karla spilar sinn þriðja leik í Íslandsmótinu á sunnudaginn hér heima fyrir leik sömu liða í Lengjubikarnum. Þeir hafa unnið einn leik og tapað einum það sem af er. Nánari upplýsingar um unglingaflokk má sjá HÉR.

Vegna fjölliðamóts 8. flokks stúlkna fellur körfuboltaskólinn niður á sunnudaginn og laugardagsæfingar færast niður í barnaskóla.