- Félagið
- Fótbolti
- Körfubolti
- Sund
- Frjálsar
- Skíði
- Júdó
- Bogfimi
- Badminton
Kæru foreldrar, forráðamenn og íþróttaiðkendur.
Þann 24. febrúar verður opnuð ný skráningar- og greiðslusíðan NÓRI á vegum Ungmennasambands Skagafjarðar (UMSS) og Sveitarfélagsins Skagafjarðar.
Til að byrja með verður hægt að skrá iðkendur sem eru á æfingum/námskeiðum hjá UMF Tindastól í frjálsum, júdó, knattspyrnu, körfubolta og í sundi. Einnig geta þeir sem eru á æfingum/námskeiðum hjá Ungmenna- og Íþróttafélaginu Smára í Varmahlíð skráð sína iðkendur.
Skráning fer fram hér.
Leiðbeiningar um skráningar má finna hér.
Nánari upplýsingar veitir Thelma Knútsdóttir, framkvæmdastjóri UMSS, á netfanginu umss@umss.is eða í síma 453 5460.