10. flokkur drengja, 9. flokkur stúlkna og 7. flokkur drengja taka um helgina þátt í síðustu umferð Íslandsmótsins og drengjaflokkur og unglingaflokkur karla halda einnig suður á bóginn.
10. flokkur drengja spilar í Iðu á Selfossi í C-riðli og leikjaplan þeirra er svona;
Jafnvel er möguleiki á því að allir leikirnir verði leiknir á laugardag, en það skýrist á morgun.
7. flokkur drengja spilar í C-riðli í Austurbergi og spila strákarnir hvorki fleiri né færri en fimm leiki;
9. flokkur stúlkna keppir í A-riðli í Keflavík og á möguleika á að komast í úrslitakeppnina, en fjögur efstu liðin í þessari umferð tryggja sér sæti þar;
Áætlað er að unglingaflokkur karla spili við KR í Frostaskjólinu á föstudagskvöldið kl. 20, drengjaflokkurinn heimsækir síðan ÍR á laugardag kl. 20.15 og um hádegisbil á sunnudag spila þeir við Fjölni B.