Úrslitaleikurinn Tindastóll - Snæfell

Þeir stuðningsmenn sem ekki ætla í Hólminn í dag eru hvattir til að hittast á Mælifelli og horfa þar saman á leikinn sem hefst kl. 16.00

Það verður enginn svikinn af því að láta sjá sig og fylgjast með leiknum á breiðtjaldi á Mælifelli. 25% af veitingasölu rennur til körfuknattleiksdeildarinnar.

Stemningin hefur verið mögnuð á stuðningsmannasamverunum og gæði útsendinganna á breiðtjaldinu hafa verið góð.

Strákarnir þurfa hlýja strauma úr heimabyggð og fátt betra en að senda þá strauma yfir alnetið í Fjárhúsið í Stykkishólmi.

ÁFRAM TINDASTÓLL!!!