Útileikur við Stjörnuna á sunnudagskvöld

Tindastólsmenn halda suður á bóginn á sunnudag og heimsækja þar Stjörnumenn í Garðabæ. Leikurinn hefst á hinum klassíska tíma kl. 19.15.

Strákarnir þurfa sárlega að bæta ráð sitt og leik eftir slaka frammistöðu gegn Skallagrími á fimmtudaginn. Stjörnumenn styrktu sig um jólin, er þeir fengu Bandaríkjamanninn Jarrid Frye til liðs við sig og verða því ekki auðveldir viðureignar.

Leikurinn verður sýndur á Sport TV og hefst eins og áður segir kl. 19.15. Stuðningsmenn ætla að hittast á Mælifelli og njóta þar samveru yfir leiknum. Sem fyrr renna 25% af veitingasölu í sjóði körfuknattleiksdeildar.