- Félagið
- Fótbolti
- Körfubolti
- Sund
- Frjálsar
- Skíði
- Júdó
- Bogfimi
- Badminton
22. Stórmót ÍR í frjálsíþróttum innanhúss fór fram helgina 20.-21. janúar, í Laugardalshöllinni í Reykjavík. Mótið er jafnan fjölmennasta frjálsíþróttamót hvers árs hér á landi. Um 700 keppendur voru nú skráðir til leiks frá 33 félögum og samböndum víðs vegar að af landinu, og í hópnum voru líka 42 keppendur frá Færeyjum. Úr Skagafirði kom vösk sveit 18 keppenda á aldrinum 11-23 ára. Skagfirðingarnir stóðu sig mjög vel, fjölmargir bættu sinn fyrri árangur og hópurinn vann til tíu verðlauna. Þau sem verðlaun hlutu voru:
Gull:
Jóna Karítas Guðmundsdóttir: Kúluvarp 11 ára (2kg): 6,71m (pm).
Andrea Maya Chirikadzi: Kúluvarp 15 ára (3kg): 11,17m (skagfirskt héraðsmet 15 ára).
Þóranna Ósk Sigurjónsdóttir: Hástökk kvenna: 1,71m (mótsmet).
Silfur:
Rúnar Ingi Stefánsson: Kúluvarp 18-19 ára (6kg): 11,56m.
Ísak Óli Traustason: 60m grind. karla: 8,44sek.
Ísak Óli Traustason: Langstökk karla: 6,78m.
Brons:
Indriði Ægir Þórarinsson: Kúluvarp 14 ára (4kg): 9,27m (pm).
Marín Lind Ágústsdóttir: Langstökk 15 ára: 4,54m (pm).
Guðmundur Smári Guðmundsson: 400m hlaup 16-17 ára: 56,26sek. (pm).
Guðmundur Smári Guðmundsson: 800m hlaup 16-17 ára: 2:13,16mín (pm).
Til hamingju öll með frábæran árangur !
Hér má sjá: KEPPENDALISTA og ÚRSLIT.