04.03.2013
Guðlaug Rún Sigurjónsdóttir hefur verið valin í U-16 ára landslið stúlkna sem tekur þátt í Norðurlandamótinu í Solna í Sviþjóð í maí n.k.
Tómas Holton er þjálfari liðsins en honum til aðstoðar er Lárus Jónsson þjálfari Hamars. Alls eru það 12 leikmenn sem voru valdir í hópinn.
Heimasíðan óskar Guðlaugu Rún innilega til hamingju með þennan árangur sem ætti að vera öllum körfuknattleiksstúlkum hjá Tindastóli hvatning.