Leikur á sunnudag.

Næstkomandi sunnudagskvöld eigast við lið Grindavíkur og Tindastóls í lengjubikarkeppninni. Búast má við að Grindvíkingar mæti ljónbrjálaðir til leiks á sínum heimavelli gegn fyrstudeildarliði Tindastóls, og ætli að svara fyrir sig eftir síðustu rimmu. Hvetjum við alla sem sjá sér fært um að mæta á leikinn að mæta í Röstina og styðja strákana. En samt sem áður verður leikurinn að sjálfssögðu sýndur beint hjá Tindastóll-tv og verður leikurinn sýndur á kaffi krók í beinni. Þar verður líka hið margrómaða pizzahlaðborð í boði á 1500 kr. Vonumst eftir að sjá ykkur flest bæði á leik og á kaffinu...Áfram Tindastóll.