Tindastóll mætir ÍR í bikarnum.

Tindastóll fékk heimaleik í bikardrættinum í dag gegn Breiðholts piltunum úr ÍR. Grindavík fékk heimaleik gegn Þór Þ. Verða þessir leikir leiknir annan eða þriðja febrúar. Lið ÍRinga er vel skipað og hefur verið á flottri siglingu í síðustu leikjum, fengu til sín frá Njarðvík um áramótin Nigel Moore sem er að smella svona ljómandi inní þetta hjá þeim. En það verður nokkuð ljóst að Síkið verðum við að fylla og búa til svakalega stemmingu og leggja allt í sölurnar til að styðja liðið okkar og komast í höllina þar sem draumar geta svo sannanlega ræst.