11 flokkur að gera gott mót.

Í dag léku drengirnir við Snæfell í Síkinu. Var leikurinn hin mesta skemmtun og var jafnræði með liðunum nánast allan leikinn. En reyndust heimamenn sterkari og náðu að landa sigri 74-73. Það er gaman að sjá hve flottum úrslitum þessir drengir eru að ná , liðið er aðeins spila þessa leiki á 6 leikmönnum. En með stöðugum æfingum og vilja og leiðsögn geta þessir drengir náð langt, þjálfari drengjanna er Bárður Eyþórsson. Stigaskor dagsins. Arnar Freyr átti frábæran dag og setti  25 stig. Pálmi Þórs 15. Hlynur Freyr 11. Elvar Hjartar 11. Bragi Hilmars 10. Arnar Óla 2. Frábært hjá þessum köppum og eiga þeir hrós skilið fyrir þáttöku sína þessa helgina. Áfram Tindastóll.