06.01.2014
Mfl karla halda í víking næstkomandi föstudag og leika við Hött á Egilsstöðum. Búast má við hörkuleik enda Hattarmenn í baráttunni við toppinn í deildinni, með skagfirska kyntáknið Hrein Birgisson innanborðs. Strákarnir hafa æft vel um jól og áramót og eru tilbúnir í átökin sem framundan eru hjá þeim. Mfl kvenna byrjar nýja árið á heimavelli á laugardag kl 17:00 og mæta þær Fjölni úr Grafarvoginum. Er óhætt að segja að þar sé um sannkallaðan toppleik að ræða, Fjölnisstúlkur 2 stigum ofar en Tindastóll en Fjölnir er með 10 stig ásamt Breiðabliki. Hefur verið virkilega gaman að fylgjast með stelpunum í vetur og er óhætt að segja að þær eigi framtíðina fyrir sér. Hvet alla að mæta á laugardaginn kl 17:00 og styðja við bakið á þeim. Áfram Tindastóll.