Búast má við mikill stemmingu í Síkinu næstkomandi föstudagskvöld þegar Tindastóll tekur á móti Augnabliki í fyrsta leik vetrarins. Hvetjum við alla til að mæta og styðja liðið í vetur og leggjast öll á eitt að koma liðinu okkar aftur á meðal þeirra bestu. Á laugardag heldur svo meistaraflokkur kvenna í víking og leikur við Fjölni í Grafarvogi kl 16:45 og viljum við hvetja alla brottflutta á höfuðborgarsvæðinu að mæta og hvetja stelpurnar. Áfram Tindastóll