Það var boðið uppá allan pakkan í Síkinu í dag þegar Tindastólsstúlkur tóku á móti Störnunni úr Garðabæ. Leikurinn var mikil skemmtun og bæði liðin að spila fínan körfubolta. Liðin skiptust á að hafa forustu í nokkur skipti í leiknum og var aldrei langt á milli liðanna. En Tindastólsstúlkur náðu að landa miklum baráttusigri undir lokin og var gaman að sjá stelpurnar í lokin landa þessum sigri, Tas var komin með 5 villur um miðjan 4 leikhluta og þá bitu ungar stelpur á jaxlinn og kláruðu þetta. Frábær liðssigur sem stelpurnar geta sko verið ánægðar með, það var ótrúlega gaman að horfa á þær í dag og allar sem ein eiga þær hrós skilið er ekki með tölfræðina af leiknum og veit því ekki stigaskorið. Þetta er staðan í deildinni og eiga stelpurnar að leika við Laugdæli í næstu umferð. Áfram Stelpur.