02.02.2014
Leikur Tindastóls og ÍR hefst klukkan 19:15 í Síkinu á morgun og verða allir sem sjá sér fært að mæta og taka þátt í þessu með okkur. Það er öruggt að þetta verður erfiðasti leikurinn hjá okkur á þessari leiktíð, og þurfum við á öllum stuðning að halda. Undanúrslitaleikur sem er síðasta hindrunin fyrir Laugardalshöllina og það væri magnað að ná að komast þangað, þar getur sko allt gerst. En á þennan leik gilda ekki árskort og verður aðgangseyrinn sá sami og á aðra leiki. 1500.kr og 500kr fyrir börn. Núna er ekkert annað að gera en að taka mánudagskvöldið frá og mæta í Síkið og skemmta sér langt fram á kvöld og styðja strákana. Áfram Tindastóll.