07.12.2013
Leikurinn hjá stólunum var til fyrirmyndar og áttu þeir ekki í teljandi erfiðum með heimamenn. Endaði leikurinn 63-115 fyrir Tindastól og var leikurinn aldrei sanngjarn slíkir voru yfirburðir Tindastóls. Tindastóll sitja núna einir á toppi fyrstudeildar með 14 stig eftir 7 umferðir. Þór Akureyri tapaði sínum fyrsta leik á tímabilinu í gærkvöldi á heimavelli gegn Hreinsa og félögum í Hetti með einu stigi. Tindastóll fær Þór í heimsókn næstkomandi föstudag kl 19:15 og verður það stæðsti leikur tímabilsins til þessa. Hvetjum við alla sem sjá sér fært að mæta í síkið og láta vel í sér heyra og hjálpa strákunum í baráttunni. Áfram Tindastóll.